BJÓRHLAUP

SKILMÁLAR

Almennir skilmálar

  1. Eftirfarandi skilmálar ná til þátttakanda og Bjórhlaups RVK og fela í sér skráningu í hlaup á vegum Bjórhlaups RVK og samþykki þátttakanda við því að hlíta skilmálunum.

  2. Bjórhlaup RVK ber ekki ábyrgð á heilsu þátttakenda í hlaupum á vegum þess, á meðan hlaupinu stendur né í tengslum við það. Þá ábyrgist The Bjórhlaupið eða starfsmenn þess og samstarfaðilar ekki tjón, hvorki líkamlegt né fjárhagslegt, sem hlauparar verða fyrir vegna þátttöku í hlaupinu.

  3. Sá aðili sem skráir fleiri en sjálfan sig í hlaupið samþykkir að veita The Bjórhlaupinu heimild til að nota skráningarupplýsingar í tengslum við viðburðinn. Þá er hann einnig ábyrgur fyrir að kynna skilmála hlaupsins fyrir þeim sem hann skráir. Ef þau hin sömu eru ekki tilbúin til að samþykkja skilmála hlaupsins verður skrifleg athugasemd að berast Bjórhlaupinu innan tveggja sólarhringa frá skráningu.

  4. Aðstandendur Bjórhlaupsins áskilja sér rétt til þess að senda upplýsingar um hlaupaviðburði á sínum vegum með tölvupósti á miðakaupendur.

  5. Persónuupplýsingar sem þátttakendur gefa upp verða meðhöndlaðar af fullum trúnaði og ekki miðlað til þriðja aðila.

  6. Allar myndir sem teknar eru af opinberum ljósmyndurum Bjórhlaupsins af þátttakendum í hlaupum þess áskilur Bjórhlaupið sér rétt til að nota í markaðs- og kynningarefni hlaupsins.

  7. Bjórhlaupi RVK er heimilt að endurskoða eða breyta skilmálum þessum vegna ófyrirsjáanlegra ástæðna, s.s. náttúruhamfara eða veðurs. Verði breytingar á skilmálum verða þær tilkynntar til þátttakenda með tölvupósti.

Greiðsluskilmálar

  1. Skráningarferli í Bjórhlaup RVK fer í gegnum heimsíðuna midi.is og gilda almennir skilmálar um miðakaup

  2. Þátttökugjöld í Bjórhlaup RVK eru ekki endurgreidd.

  3. Ef hlaupið fer ekki fram samkvæmt áætlun vegna ófyrirsjáanlegra atburða, svo sem náttúruhamfara, munu greidd þátttökugjöld í hlaupið ekki verða endurgreidd. Leitast verður við að finna nýja dagsetningu fyrir hlaupið.

  4. Með kaupum á miða í Bjórhlaupið, samþykkja kaupendur að fá sendan tölvupóst af og til frá aðstandendum hlaupsins og aðalsamstarfsaðilum þess. Ef þú af einhverjum ástæðum vilt ekki samþykkja þetta, þá getur þú haft samband við skrifstofu Bjórhlaups RVK á Íslandi.

Viltu hafa samband?

Fyrirspurnum eða athugasemdum varðandi þessa skilmála eða annað sem viðkemur Bjórhlaupi RVK á Íslandi má koma á framfæri með því að nota neðargreindar upplýsingar.

Heimilisfang:
S.B. Brugghús ehf.
Skipholti 31
105 Reykjavík

Tölvupóstfang:
rvk@rvkbrewing.com